Fréttir

Í leit að starfskrafti

Við erum að leita að starfskrafti sem taka á við af Dóru Mögdu sem hættir störfum um næstu mánaðarmót eftir 5 ára starf. Eftirfarandi auglýsingu birtum við í Morgunblaðinu um helgina.
Lesa meira

Gleðileg jól

Óskum viðskiptavinum og velunnurum öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs með þökk fyrir samskipin á líðandi ári. Starfsfólk Rafborgar ehf
Lesa meira

Úrval af hleðslurafhlöðum

Eins og hefur komið fram þá erum við með talsvert úrval af hleðslurafhlöðum bæði frá GP Batteries og Panasonic. Allar upplýsingar eru hér á síðunni um þessar rafhlöður. Til fróðleiks setjum við mynd af helstu gerðum sem við erum með á lager núna. Ef  hér er ekki einhver gerð sem ykkur vantar látið okkur vita og við munum panta.
Lesa meira

Ljós frá Ansmann

Við getum nú boðið einstaklega vönduð ljós frá Ansmann. Þetta eru hleðsluljós af gerðinni Metal D. Þýsk gæðavara. Öryggisfyritæki, eftirlitsaðilar, fjármálastofnanir hafa tekið þessa gerð hjá okkur.
Lesa meira

Endurbættar upplýsingar

Við höfum endurbætt upplýsingar á heimasíðunni um hleðslutæki (sjá hér) en sala á hleðslutækjum og hleðslurafhlöðum hefur aukist allverulega. Vegna þess þá höfum við aukið úrvalið bæði af tækjum og rafhlöðum. Við bendum ykkur á upplýsingasíðuna yfir þær gerðir af tækjum sem við eigum á lager en jafnframt er möguleiki á að skoða úrval af tækjum m.a.frá GP Batteries hér. Sé þess óskað getum við pantað þær gerðir hleðslutækja sem hér eru sýndar. Eins getið þið skoðað úrval hleðslurafhlaðna hér. Helstu gerðir sem við erum með eru frá GP Batteries og Panasonic.  Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is
Lesa meira

Breytingar á vefsíðu

Við höfum undanfarið unnið að breytingum á heimasíðu okkar til þess að hægt sé að nýta hana betur bæði fyrir ykkur viðskiptavini okkar og okkur sjálf. Til þess að alltaf séu sem nýjastar upplýsingar inni á síðunni höfum við tekið það til bragðs að setja inn tengingar á síður birgja okkar og framleiðanda og en því fylgir að upplýsingar eru þá á erlendum tungumálum. Okkur þykir það leitt en hjá því er ekki komist þar sem nýjungar koma inn nánast á hverjum degi og vonlaust fyrir okkur að fylgjast með þeim öllum. Ávinningurinn er um leið að úrval eykst sem verður til þess að ef eftirspurn er næg þá kaupum við inn nýjar rafhlöður til að hafa á lager. Við erum svo að koma upp tilboðshorni þar sem við bjóðum ýmsar rafhlöður eða tæki og búnað á betra verði en venjulega.    Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is
Lesa meira

Fullkominn tölvubúnað

Við erum komin með mjög fullkominn tölvubúnað sem gerir okkur kleyft að greina ástand rafhlaðna og eins afhlaða og endurhlaða. Þetta gefur möguleika á að kanna hvort rafhlöður séu gallaðar eða hvort sá búnaður sem þær eru notaðar við sé bilaður. Eins er hægt að reyna endurlífgun á rafhlöðum.
Lesa meira

GP Batteries brúnsteinsrafhlöður

Við erum að skoða möguleika á að bjóða frá GP Batteries brúnsteinsrafhlöður en það eru þessar venjulegur rafhlöður í vasaljós og þess háttar. Þetta eru Zink Carbon rafhlöður og heita GP Greencell en þær eru á svipuðu verði og Panasonic Ultra rafhlöður. Þær eru í blister pakkningum með hefðbundið magn en ekki í magnpakkningum lengur. Við höfum boðið eina gerð en það er 918 eða sem sumir kalla 4R25x2 sem er helst notuð við eldri gerðir af handlugtum, fyrir leiðsiljós og rafmagnsgirðingar. Þær hafa reynst vel. GP Batteries bauð áður einnig gerðir eins og Super Cell og Power Cell en þær hafa horfið af markaði hér á Norðurlöndum. Þær rafhlöður eru ekki af sömu gæðum og Greencell rafhlöður eins og sjá má á notkunarmöguleikum á heimasíðu GP Batteries.   Sjá bækling  bls. 8 og 20.    Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is
Lesa meira

Bæklingur yfir símarafhlöður

Til gamans setjum við hér inn bækling yfir símarafhlöður þ.e. rafhlöður í þráðlausa síma sem fá má frá GP Batteries. Listinn er langt frá því að vera tæmandi og nýjustu og ferkustu upplýsingarnar má fá undir flipanum símarafhlöður og fara þar í GP símarafhlöður en þar er leitavél og þarf aðeins að setja inn heiti símans og finnur vélin þá tiltekna gerð ef til. Hringið þá í síma 5622130 eða sendið fyrirspurn á sala@rafborg.is  Úrvalið af símarafhlöðum er líklega ótæmandi. Á hverjum degi birtist ný gerð. Skoðið bæklinginn    Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is
Lesa meira

Panasonic Ultra Power hverfa af markaðnum

Panasonic Ultra Power (R rafhlöður) munu á næstu mánuðum hverfa af markaðnum en í staðinn koma Panasonic Special sem verða á mun betra verði þegar þær koma. Vænta má þeirra rafhlaðna í júníbyrjun. Panasonic Special verða eingöngu til í blister pakkningum eins og alkaline rafhlöðurnar. Hugsanlega verðum við með Zink Carbon rafhlöður (brúnsteins) frá GP sem nefnast GP Greencell en í dag eru þær á svipuðu verði og Panasonic Ultra. 
Lesa meira