Ný vefsíða

Við höfum nú endurbætt og tekið í notkun nýja vefsíðu sem gerð er af Stefnu ehf. á Akureyri.

Við vonum að hún komi viðskiptavinum okkar og okkur sjálfum að góðum notum. Vekjum athygli á að sumar síður koma ekki rétt upp ef upplausn skjás er meiri en 1152 x 864 en þá þurfið þið að ferðast niður með bendilinn og þá kemur síðan í ljós. Við munum svo reyna eftir bestu getu að setja inn upplýsingar og fréttir um nýjar vörur eða aðrar nýjungar eftir því sem tími og geta er til.

Ef þið viljið fá upplýsingar um nýjar færslur á síðunni vinsamlegast skráið ykkur á póstlista.