Hækkun á verði á blýsýrurafhlöðum

Undanfarið hafa birgjar okkar keppst við að tilkynna hækkanir á ýmsum gerðum rafhlaðna m.a. á blýsýrurafhlöðum. Tilgreindar eru ástæður og eru þær m.a. all verulegar hækkanir á málmum og tilheyrandi hráefnum í rafhlöðurnar.

Nú eru fyrstu sendingar af blýsýrurafhlöðum á hækkuðu verði að koma í hús og er það því óhjákvæmilegt  að hækka verð og verður það gert á næstu dögum.

Hækkunin er mismunandi eftir gerðum og stærðum en ljóst er að við erum að tala um verulegar hækkanir. Hækkanir á verði birgja eru frá 8% og upp í 54% en allar þessar rafhlöður falla í tollflokk með 10% tollgjaldi og 15% vörugjaldi svo hækkanir birgja margfaldast. Flestar gerðir eru að hækka um 35%. Bæði Panasonic og Big Bat blýsýrurafhlöður hækka.