Undanfarið hafa birgjar okkar keppst við að tilkynna hækkanir á ýmsum gerðum rafhlaðna m.a. á blýsýrurafhlöðum. Tilgreindar eru
ástæður og eru þær m.a. all verulegar hækkanir á málmum og tilheyrandi hráefnum í rafhlöðurnar.
Nú eru fyrstu sendingar af blýsýrurafhlöðum á hækkuðu verði að koma í hús og er það
því óhjákvæmilegt að hækka verð og verður það gert á næstu dögum.
Hækkunin er mismunandi eftir gerðum og stærðum en ljóst er að við erum að tala um verulegar hækkanir. Hækkanir á verði birgja eru
frá 8% og upp í 54% en allar þessar rafhlöður falla í tollflokk með 10% tollgjaldi og 15% vörugjaldi svo hækkanir birgja margfaldast. Flestar
gerðir eru að hækka um 35%. Bæði Panasonic og Big Bat
blýsýrurafhlöður hækka.