Við vorum að fá frá tveimur birgjum okkar sendingar af rafhlöðum. Lagerstaðan á Panasonic CR123 og eins CR2032 var komin nánast á núll en nú eigum við nægar birgðir.
Við fengum sendingu af hleðslurafhlöðum rétt fyrir áramótin en sala á margs konar hleðslurafhlöðum af NiCd, NiMh eða litíum gerðum hefur aukist. Pakkahleðslurafhlöður eigum við í miklu úrvali.
Fyrir stuttu síðan sögðum við frá góðum viðtökum sem everActive hleðslutækin hafa fengið svo við tókum inn meira af þessum þremur gerðum sem við höfum verið með.