Við stefnum á að fresta erlendum verðhækkunum


Allt bendir nú til þess að okkur takist að fresta áhrifum af erlendum verðhækkunum á Panasonic rafhlöðum sem í gildi koma 1. febrúar.
Við höfum pantað talsvert magn af rafhlöðum sem við gerum ráð fyrir að endist okkur í 2 til 3 mánuði, en eins og útlit er fyrir í dag, þá fáum við þessa sendingu á því verði sem gildir í dag.

Panasonic hækkar 1. febrúar vegna hækkunar á hráefni, en hækkanir er allt frá 2% og upp í 63%. Algengustu rafhlöðurnar eru að hækka frá 5% til 19%, en það eru alkaline rafhlöður, en t.d. LR Photo rafhlöður eru að hækka meira.

Við höfum sett nýjar vörur á tilboðssíðuna okkar og eins höfum við komið upp borði í verslun okkar þar sem á boðstólum eru ýmsar vörur á tilboðsverði.

Innan skamms munum við kynna aðrar mjög svo jákvæðar aðgerðir hjá okkur.