Vél til samsetningar á rafhlöðupökkum

Við erum þessa dagana að ganga frá kaupum á sérstakri vél til að setja saman ýmsar gerðir af rafhlöðupökkum.



Vélin er væntanleg til landsins undir lok þessa mánaðar. Til þessa höfum við keypt tilbúna pakka frá birgjum okkar og unnið úr þeim þær stærðir og gerðir, sem óskað hefur verið eftir, en með þessu tæki getum við vonandi tekið að okkur verkefni, sem við réðum ekki við áður.

Stundum er það svo að það er ansi lítið plássið, sem rafhlöðurnar samtengdar eiga að taka í ýmsum tækjum og tólum og eins og við gátum framkvæmt samsetningar á rafhlöðupökkum áður, var það svo, að það gat vantað nokkra millimetra uppá að allt passaði.

Með þessu tæki verður öll samsetning fyrirferðaminni og því líkur á, að við getum sinnt fleiri verkefnum.

Lengi höfum við gengið með þessi kaup í maganum og þar sem eftirspurn eftir sérsmíði hefur aukist látum við kaupin eftir okkur. Við vonumst til að bæta með kaupunum þjónustu okkar á þessu sviði.

Það mun taka okkur einhvern tíma að þjálfa okkur upp í vinnslu, en þekking er til staðar á hinum ýmsu útfærslum og samsetningum. Við munum halda áfram að kaupa inn ákveðnar gerðir af pökkum, en vegna aukinnar eftirspurnar er ætlun okkar að vera með breiðara úrval. Fyrsta sendingin kemur í desember.

..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower........
........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........
.
.