Úrval af hleðslurafhlöðum

Eins og hefur komið fram þá erum við með talsvert úrval af hleðslurafhlöðum bæði frá GP Batteries og Panasonic. Allar upplýsingar eru hér á síðunni um þessar rafhlöður. Til fróðleiks setjum við mynd af helstu gerðum sem við erum með á lager núna. Ef  hér er ekki einhver gerð sem ykkur vantar látið okkur vita og við munum panta.

Eins erum við með GP Greencell rafhlöður sem eru venjulegar brúnsteinsrafhlöður. FRá Panasonic með allar gerðir venjulegra rafhlaðna en nú fer Ultra af markaði og Special tekur við þ.e þessar silfurlituðu hverfa en rauðu taka við. Frá GP Batteries erum við með tvær gerðir Alkaline rafhlaðana en það eru Super og Ultra gerðirnar. Ultra gerðin er öflugri en það er þó ekki lýsandi í verði á öllum stærðum.