PKCell hleðslurafhlöður komnar í fleiri stærðum

Við höfum fengið nokkrar nýjar gerðir af hleðslurafhlöðum frá PKCell.



Sífellt aukum við úrvalið ekki bara af Ni-Cd eða Ni-Mh hleðslurafhlöðum heldur einnig litíum hleðslurafhlöðum þá sívölum eða hnappa. Verkefni okkar við smíði neyðarljósarafhlaðna í stærðum eins og D, C og SC hefur aukist jafnt og þétt. Flestar rafhlöður í neyðarljós erum við með í D stærð 4500mAh, sem eru öflugri en þær sem algengastar voru, en þær voru 4000mAh. C stærðin er yfirleitt 2000 mAH og svo er einnig með SC stærðina, en hún er 2000 mAh (bæði Ni-Cd og Mi-Nh) en fáanleg 3000 mAh líka.

 




Í pakka eins og í handverkfæri notum við líka öflugri rafhlöður eins og 3300 mAh, en hér ræður stærðin. Í mörgum gerðum eru ekki standard stærðir rafhlaðna. Geta verið 4/5SC eða 5/4SC eða mismunandi A stærðir ofl. ofl. Við eigum þess vegna stundum erfitt með að gefa upp ákveðið verð, nema opna pakkann fyrst og sjá hva hann hefur að geyma. Við eigum ekki upplýsingar frá framleiðanda um hvaða rafhlöður pakkar hafa að geyma.

 

 

 

..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower........
........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, fartölvurafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........
.
.