Panasonic sending


Í byrjun mánaðarins fengum við stóra sendingu af Panasonic rafhlöðum af öllum gerðum.
Eins og áður hefur komið fram þá var það ætlun okkar að fresta erlendum verðhækkunum og við það stöndum við.

Í þessari sendingum fengum við m.a. Panasonic úrarafhlöður. Við erum og höfum verið með tvær gerðir frá þeim þ.e. W og SW gerðir. W gerðin var og er fyrir stafræn tölvuúr en SW gerðin fyrir svokölluð Anolouge úr þ.e. vísaúr.

Panasonic hefur nú breytt framleiðslu sinni og endurbætt og bjóða nú aðeins eina gerð fyrir úr, hvort sem það eru úr með stafrænan aflestur eða vísaúr.

Í sömu sendingu fengum við einnig Infinium hleðslurafhlöður í AA og AAA sem vantað hefur hjá okkur í nokkurn tíma.