Panasonic Carbon Zink rafhlöður
Við munum stefna á að eiga ávallt D og C Panasonic Carbon Zink rafhlöður á lager. Carbon Zink rafhlöður eru fyrir tæki og búnað sem þurfa ekki mikla orku. Þær eru tilvaldar fyrir klukkur, útvörp, vasareikna og fjarstýringar. Við vorum að fá nýja sendingu.
Ef eftirspurn verður eftir AA (R6) og AAA (R03) þá munum við einnig verða með þær á lager.
Hafið endilega samband við okkur í síma 562-2130 eða sendið okkur tölvupóst á rafborg@oger.is ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum og viljið panta.