Ný gerð af blýsýrurafhlöðum frá ZLPOWER


Komin er ný gerð af blýsýrurafhlöðum til að bæta við úrvalið hjá okku. Við tókum helstu stærðið og gerðir og verðið er mjög hagstætt. 
Við höfum um árabil flutt inn og selt Panasonic og BigBat og er talsverður verðmunur á þessum tveimur gerðum.  Panasonic eru gæðamiklar býsýrurafhlöður og hafa reynst vel, en hafa hækkað verulega í verði. Af  BigBat höfum við 7 eða 8 ára reynslu af og hafa þær reynst frábærlega bæði gæðalega og eins í verði. Talsverður munur er á verði BigBat og Panasonic en BigBat er yfirleitt mun ódýrari. Við höfum þó undanfarið lækkað verð á Panasonic og eins á Bigbat.

Nú erum við komin með eina gerð til viðbótar sem er mun ódýrari en BigBat og þá um leið sú ódýrasta sem við bjóðum. Fyrsta sendingin af helstu gerðunum en í takmörkuðu magni og svo verður ávallt, þar sem afgreiðslutími er langur eða allt að tveir mánuðir.

Verðdæmi frá búðinni okkar.

  6V   3.2 Ah á kr.   2.019
  6V   4.0 Ah á kr.   1.741
12V   2.0 Ah á kr.   2.905
12V   7.0 Ah á kr.   5.046
12V 26.0 Ah á kr.  12.229
12V 40.0 Ah á kr.  29.149

Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum er hér vandaður framleiðandi sem býður mikið úrval af blýsýrurafhlöðum og við munum eftir að hafa skoðað fyrstu sendinguna skoða frekari innflutning af öðrum gerðum og stærðum. Ef smellt er á hlekkinn hér fyrir neðan má lesa frekar um ZLPOWER blýsýrurafhlöður.









..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower........
........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........