eneloop hleðslurafhlöður
Meira af eneloop hleðslurafhlöðum og hleðslutækjum komið á lager. Undanfarið hefur vantað inn í úrvalið hjá okkur. Eftirspurnin meiri en við gerðum ráð fyrir.
Panasonic Eneloop hleðslurafhlöðurnar eru öflugar, endingagóðar og á lægra verði en aðrar hleðslurafhlöður frá Panasonic sem við erum með. Umhverfisvænar og einnig er framleiðsla þeirra umhverfisvæn. Notast er við sólarorku.
Við tókum inn 4 gerðir þ.e. AA og AAA hleðslurafhlöður í tveimur pakkningagerðum þ.e 4 stk. AA og svo sér pakkningu af sömu rafhlöðum en með geymsluboxi. Samskonar pakkningar í AAA stærð.
Kostir Panasonic Eneloop hleðslurafhlaðna eru ótvíræðir. Það eru til 3 notkunargerðir en við tókum fyrst inn eina gerð þessa algengustu hvítu en höfum nú bætt þeirri svörtu við.
- Panasonic Eneloop koma fullhlaðnar á lager og tilbúnar til notkunar.
- Á notkunarsviðinu frá 0°C til -20°C vinna þær óaðfinnanlega.
- Mun afkastameiri og hægt að taka að jafnaði 4,4 fleiri myndir á rafrænar myndavélar en ef notaðar eru venjulegar rafhlöður
- Góð kaup vegna aukinnar endingar og geymslu
- Að nota Eneloop hleðslurafhlöður dregur úr sóun og áhrif á umhverfið eru minni
- Hægt að hlaða hvenær sem er. Engin minnisáhrif
- Úrval af hleðslutækjum fyrir hraða hleðslu
Panasonic Eneloop Pro hleðslurafhlöðurnar eru enn öflugri, endingagóðar og á lægra verði en aðrar hleðslurafhlöður frá Panasonic sem við erum með. Umhverfisvænar og einnig er framleiðsla þeirra umhverfisvæn. Notast er við sólarorku.
Við tókum inn 4 gerðir þ.e. AA og AAA hleðslurafhlöður í tveimur pakkningagerðum þ.e 4 stk. AA. Samskonar pakkningar í AAA stærð.
Kostir Panasonic Eneloop Pro hleðslurafhlaðna eru ótvíræðir. Það eru til 3 notkunargerðir en við tókum fyrst inn eina gerð þessa algengustu hvítu en höfum nú bætt þeirri svörtu við.
- Panasonic Eneloop Pro koma fullhlaðnar á lager og tilbúnar til notkunar.
- Á notkunarsviðinu frá 0°C til -20°C vinna þær óaðfinnanlega.
- Mun afkastameiri og hægt að taka að jafnaði ??? fleiri myndir á rafrænar myndavélar en ef notaðar eru venjulegar rafhlöður
- Góð kaup vegna aukinnar endingar og geymslu
- Að nota Eneloop Pro hleðslurafhlöður dregur úr sóun og áhrif á umhverfið eru minni
- Hægt að hlaða hvenær sem er. Engin minnisáhrif
- Úrval af hleðslutækjum fyrir hraða hleðslu
|
Panasonic BQ-CC65 hleðslutæki Vnr. 280185
Panasonic eneloop hleðslutæki fyrir allar gerðir AA/AAA Ni-Mh hleðslurafhlöður.
- Sýnir ástand rafhlöðu á LCD skjá.
- Sýnir mAh, volt, tíma og Wh.
- Er með afhleðsluham.
- Er með USB tengi til að hlaða GSM síma.
- Hleður 2 x AA rahlöður á 1 1/2 klst.
- Tekur 4 x AA eða 4 x AAA rafhlöður.
- Greinir volt og kemur því í veg fyrir yfirhleðslu sem lengir líftíma rafhlöðu.
- Stærð: (B) 88 x (L) 147 x (H) 40 mm
- Þyngd: 120 g
|
|
Panasonic BQ-CC63 hleðslutæki Vnr. 280188
Panasonic eneloop hleðslutæki fyrir allar gerðir AA/AAA Ni-Mh hleðslurafhlöður.
- Hleður 8 x AA, 8 x AAA, blöndu af AA/AAA rafhlöðum.
- Hleður 8 x AA rafhlöður á 5 klst.
- Sýnir 8 x LED ljós, grænt "rafhlaða í hleðslu".
- Hleðslustýring í hverju hólfi.
- Sýnir volt og kemur í veg fyrir yfirhleðslu.
- Stærð: (B) 147 x (L) 119 x (H) 28 mm
- Þyngd: 240 g
|
|
Panasonic BQ-CC61 hleðslutæki Vnr. 280223
Panasonic eneloop hleðslutæki fyrir allar gerðir AA/AAA Ni-Mh hleðslurafhlöður.
- Með USB hleðslusnúru.
- Hleður 4 x AA rafhlöður á 10 klst.
- Sýnir 2 x LED ljós, grænt "rafhlaða í hleðslu".
- Sérstaklega létt eða 65 g, hentugur á ferðalögum.
- Með tímastilli fyrir hleðslu.
- Stærð: (B) 66 x (L) 85 x (H) 28 mm.
- Þyngd: 65 g án hleðslusnúru.
|
|
Panasonic BQ-CC87USB hleðslutæki Vnr. 280212
Panasonic eneloop USB hleðslutæki fyrir allar gerðir AA/AAA NiMh hleðslurafhlöður.
- Hleður AA + AAA 1 - 4 rafhlöður
- Hleðslutími AA: 1-2 (1,25-3 klst.) - 3-4 (3-6 klst.)
- Hleðslutími AAA: 1-2 (1.5-2.25 klst.) - 3-4 (3-4.5 klst.)
- Sjálfstæð hleðsluhólf
- Hleður önnur tæki með USB (Hleðslubankaeiginleikar)
- LED ljós
- Með tímastilli fyrir hleðslu
- Hitastýring (Delta V)
- Stærð: 85x66x29 HxBxÞ
- Þyngd: 65g
|
|
Panasonic BQ-CC55 hleðslutæki Vnr. 280210
Hleðslutækið (hvítt) er fyrir allar gerðir af Ni-Mh hleðslurafhlöðum Er fyrir AA/AAA hleðslurafhlöður.
- Hleðslutími ca. 1 1/2 klst. (Panasonic Eneloop AA 2 stk.)
- Hleðslutími ca. 3 klst. (Panasonic Eneloop AA 3 til 4 stk.).
- Hægt að hlaða 1 til 4 stk.
- Yfirhleðsluvörn.
- Með þremur LED ljósum rautt, gult, grænt sem sýna stöðu hleðslu.
- Gult blikkandi ljós sýnir að það líður að rafhlöðuskiptum.
- Rautt blikkandi ljós sýnir að komið er að rafhlöðuskiptum.
- Þyngd 120g.
- Stærð 68x120x28mm
|
|
Panasonic BQ-CC51 hleðslutæki Vnr. 280219
Hleðslutækið (hvítt) er fyrir allar gerðir af Ni-Mh hleðslurafhlöðum Er fyrir AA/AAA hleðslurafhlöður.
- Yfirhleðsluvörn
- Hleðslutími ca. 10 klst. (Panasonic Eneloop AA).
- Hægt að hlaða 2 til 4 stk.
- LED hleðsluljós
- Þyngd 82g.
- Stærð 66x108x28mm.
|
Hafið endilega samband við okkur í síma 562-2130 eða sendið okkur tölvupóst á rafborg@oger.is ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum og viljið panta.