Jólakveðja til viðskiptavina okkar

Ágætu viðskiptavinir

Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og friðsældar um hátíðina. Megi komandi ár veita öllum farsæld og gæfu.

Árið sem nú er að líða hefur um margt verið einstakt. Rafborg náði því að verða 40 ára en fyrirtækið var stofnað 1967. Flutt var í nýtt og stærra húsnæði snemma á árinu og er það von okkar að það reynist okkur vel í aukinni starfsemi.

Við stefnum áfram á þeirri braut sem gefist hefur okkur vel og munum leggja enn meiri áherslu á að veita góða þjónustu.