Gífurlegt úrval af hleðslurafhlöðum

Gífurlegt úrval af hleðslurafhlöðum getum við boðið frá GP Batteries. Við erum með nokkrar gerðir á lager en erum að fjölga þeim gerðum sem við verðum með og til að nefna nokkrar stærðir þá vekjum við athygli á að hægt er að fá t.d. GP P20 frá 1.600 mAh til 9.000mAh. GP P14 frá 1.600 mAh til 3.500 mAh. GP P6 frá 700 mAh til 2.500 mAh. GP P03 frá 300 mAh og upp í 950 mAh. GP P22 má fá 170 mAh. Þetta er mikið úrval og líklega einn fárra framleiðanda sem býður upp á rafhlöður með svona fjölbreyttum mAh.

Frá sama framleiðanda erum við með nokkrar gerðir af hleðslutækjum GP Powerbank sem eru fyrir mismunandi gerðir rafhlaðna og mAh.

Sjá GP bækling yfir hleðslutæki og hleðslurafhlöður  en á bls. 15 til 18 og svo aftur á bls. 24 koma fram upplýsingar um hleðslurafhlöður. Mjög greinagóðar samanburðar upplýsingar um hleðslutækin eru svo á bls. 19 til 23 . Hér er svo bæklingur þar sem sýndar eru helstu gerðir af GP hleðslutækjum fyrir P6 og P03 hleðslurafhlöður 

GP P6 rafhlaðan er í dag öflugasta P6 rafhlaðan á markaðnum. Lesið meira um hana í bæklingi

 Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is