Breytingar á vefsíðu

Við höfum undanfarið unnið að breytingum á heimasíðu okkar til þess að hægt sé að nýta hana betur bæði fyrir ykkur viðskiptavini okkar og okkur sjálf.

Til þess að alltaf séu sem nýjastar upplýsingar inni á síðunni höfum við tekið það til bragðs að setja inn tengingar á síður birgja okkar og framleiðanda og en því fylgir að upplýsingar eru þá á erlendum tungumálum. Okkur þykir það leitt en hjá því er ekki komist þar sem nýjungar koma inn nánast á hverjum degi og vonlaust fyrir okkur að fylgjast með þeim öllum.

Ávinningurinn er um leið að úrval eykst sem verður til þess að ef eftirspurn er næg þá kaupum við inn nýjar rafhlöður til að hafa á lager.

Við erum svo að koma upp tilboðshorni þar sem við bjóðum ýmsar rafhlöður eða tæki og búnað á betra verði en venjulega.

 

 Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is