Vinsælasta LED ljósið okkar komið aftur á lager
Cree LED ljósið okkar er lítið, handhægt og öflugt. Nú er það komið aftur á lager og það í enn betri búning og á hagstæðari verði.
![Vinsælasta LED ljósið okkar er komið aftur á lager Vinsælasta LED ljósið okkar er komið aftur á lager](/static/files/frettir/2014/cree_led_vasaljos_1_side.jpg)
Cree LED ljósið hefur selst einstaklega vel og það var uppselt þangað til fyrir stuttu síðan. Vorum að fá það aftur og nú með klemmu og enn betri hnapp.
![Cree LED vasaljósið séð að ofan Cree LED vasaljósið séð að ofan](/static/files/frettir/2014/cree_led_vasaljos_1_top.jpg)
Eiginleikar
- Svart álhús með klemmu.
- Þyngd 53g | Stærð 20x97mm.
- Lýsir 25m í 210 mínútur.
- Ljóstyrkur 60 Lum.
- Endingartími peru 50.000 stundir (næstum 7 ár).
- Rafhlaða 1 x AA.
Einnig er hægt að kaupa hulstur utan um Cree LED Vasaljósið. Hulstrið er með strappa á bakhlið til að þræða belti inn fyrir, svo þetta er í raun beltishulstur.