TM sendir jólakveðju til öryggis

Þessa dagana er TM Tryggingarmiðstöðin að senda viðskiptavinum sínum jólakveðju til öryggis og með fylgir GP Super alkaline 9 V rafhlaða frá okkur.

Jólakveðjan frá TM


Vakin er athygli á að reykskynjarar hafa gegnum tíðina bjargað mörgum mannslífum. Farið er yfir hvernig á að staðsetja og hvar.

Yfirfara reykskynjara og skipta um rafhlöður. Taka ekki óþarfa áhættu og slökkva ljós yfir nóttina. Einnig er minnst á að hafa slökkvitæki á heimilinu og yfirfara það reglulega.

Við tökum undir orð TM og vetjum ykkur til að gæta varúðar um jólahátíðina jafnt sem og alla daga.

Hjá Ólafi Gíslasyni & Co hf Eldvarnamiðstöðinni sem er á sama stað og við þ.e. Sundaborg 3 sími 5684800 getið þið fengið reykskynjara, látið yfirfara slökkviltækið eða fengið nýtt.

Sjá http://www.olafurgislason.is/ eða netverslun TM.