Saga Zhongyin Ningbo Batteries


Zhongyin Ningbo Batteries er framleiðandi Pairdeer rafhlaðna, sem við höfum nýverið komið með á markað hér. Viðtökur hafa verið mjög góðar enda verð mjög hagstætt.


Verðið er mun betra, en það sem við höfum áður geta boðið og við teljum að gæði þesssara rafhlaðna séu mikil. Prófanir okkar hafa sýnt svo. Þess vegna viljum við upplýsa viðskiptavini okkar, hvers vegna við völdum Pairdeer rafhlöður af öllu því úrvali sem í boði er.

Frá árinu 2003 hefur fyrirtækið Zhongyin Ningbo Batteries verið í fyrsta sæti í framleiðslu á alkaline rafhlöðum í Kína og flutt út um 70% af öllum alkaline rafhlöðum sem framleiddar eru í Kína. Á þeim tíma voru framleiðslulínurnar 21 þar af 7 eingöngu fyrir alkaline rafhlöður þ.e. LR20, LR14, LR6, LR03 og LR1.

Mikil áhersla hefur verið lögð á nýjungar í framleiðslu og gæðastjórnun, en 1997 hlaut fyrirtækið úttekt samkvæmt ISO9002. Eins hefur mikil áhersla verið lögð á umhverfismál og árið 2002 hlaut fyrirtækið endurskoðun samkvæmt ISO9001:2000 í gæðastjórnun. Úttekt á umhverfisstefnu fyrirtækisins var úttekin samkvæmt ISO14001:1996 og voru þessar úttektir gerðar og stýrt af Det Norske Veritas (DNV).

Fyrir um 10 árum var fyrirtækið þegar í fararbroddi í framleiðslu á kvikasilfursfríum alkaline rafhlöðum. Árið 2006 fékk fyrirtækið sérstaka viðurkenningu fyrir framleiðslulínu sína á LR6 alkaline rafhlöðum (the Second Prize of National Scientific Award). Snemma á árinu kom á markað frá þeim endurbætt útgáfa á alkaline rafhlöðum, sem nefnd er Ultra Digital rafhlaður, en þær eru ætlaðar í tæki og tól, sem taka til sín mikla orku á skömmum tíma. Hægt er t.d. að taka allt að 50% fleiri myndir á myndavél, en með venjulegri alkaline rafhlöðu.

Dreifikerfi Pairdeer er mjög öflugt og er um allan heim. Þeir framleiða einnig rafhlöður undir öðrum nöfnum. Til að bjóða sem hagstæðasta verðið og geta verið með rafhlöður sem ferskastar kaupum við beint inn frá Kína.

Til fróðleiks og til að kynna frekar Pairdeer alkaline rafhlöður, setjum við upp verðdæmi á Panasonic Evoia, Panasonic Digital Extreme og Pairdeer Ultra Digital. Allar þessar gerðir eigum við á lager og svo auðvita hefðbundnar alkaline rafhlöður.

Vörunúmer Heiti og tegund Verð % munur
120305 LR6EE Panasonic Evoia 261  
120307 LR6UD Pairdeer Ultra Digital 139 -46,7%
120310 ZR03 Panasonic Digital Extreme 245  
120312 LR03UD Pairdeer Ultra Digital 121 -50,6%

 



Vörunúmer Heiti og tegund Verð % munur
107100 LR20 Panasonic Alkaline D  401  
107114 LR20 Pairdeer Alkaline D  305  -23,9%
107120 LR14 Panasonic Alkaline C  327  
107124 LR14 Pairdeer Alkaline C  222  -32,1%
107150 LR6 Panasonic Alkaline AA  131  
107156 LR6 Pairdeer Alkaline AA  98  -25,2%
107160 LR03 Panasonic Alkaline AAA  136  
107176 LR03 Pairdeer Alkaline AAA  70  -48,5%
107200 6LR61 Panasonic Alkaline 9V  623
 
107203 6LR61 Pairdeer Alkaline 9V  397  -36,2%


 


..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower........
........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........