Pínufróðleikur um Lithíum rafhlöður


Notkun og sala á litíum (Lithíum) rafhlöðum hefur aukist allverulega en hér á eftir er pínufróðleikur um þær.
Litíumrafhlöður komu fram fyrir u. þ. b. 30 árum sem hágæðarafhlaða fyrir herinn. Fyrstu 10 árin, áður en rafhlaðan komst á markaðinn í iðnaði, var hún líka mjög dýr. Síðustu árin hafa ýmsar tegundir litíumrafhlaða verið framleiddar í miklu magni og hefur verðið nú lækkað verulega.
Litíumrafhlöður nýtast best þar sem krafist er lengri endingar með mjög lágum eða háum umhverfishita og lágum hleðslustraumi.

Glöggt má sjá af eiginleikum rafhlaðanna að tilgangurinn með þeim var í þágu hersins. Litíumrafhlöður hafa mjög mikla orkuþéttni, þ. e. tekist hefur að fá fram mikla orku í hlutfalli við stærð og þyngd rafhlöðunnar. Þar fyrir utan hefur rafhlaðan mesta hitaþolið af öllum 1. stigs rafhlöðum.

Sjálfsafhleðsla er mjög lítil og við eðlilegar aðstæður getur ónotuð litíumrafhlaða geymst allt að 10 árum án þess að afkastageta skaðist. Hin lága sjálfsafhleðsla stafar af því að rafskautin byggja upp verndandi sýrubirgðir. Þess vegna geta litíumrafhlöður sem hafa legið lengi á lager
sýnt lægri rafspennu fyrst eftir að þau eru tekin í notkun. Þetta stafar af því að hleðslustraumurinn þarf að brjóta sýrulagið niður áður en rafhlaðan framleiðir eðlilega rafspennu.

Litíumrafhlöður eru til með mismunandi efnasamsetningu sem notaðar eru til mismunandi hluta og hafa mismunandi eiginleika.

Á heimasíðu okkar má lesa fróðleik um flestar gerðir rafhlaðna.







........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........