Nýr birgðalisti yfir blýsýrurafhlöður

Við höfum endurbætt  birgðalista okkar hér á síðunni yfir þær gerðir af blýsýrurafhlöðum sem við erum almennt með á lager .

Nokkrar nýjar gerðir hafa litið dagsins ljós en aðrar fallið af lista þar sem framleiðslu hefur verið hætt. Við nefnum sérstaklega blýsýrurafhlöður af Long gerð sem tekið hafa við m.a. af nokkrum gerðum af Panasonic og Vision rafhlaðum.

Hér getið þið skoðað listann. Auðvita getum við boðið aðrar og fleiri gerðir af blýsýrurafhlöðum og geymum en þessar eru helstar og algengastar í sölu.