Ný gerð GP hleðslutækis ásamt 2700 mAh rafhlöðum

Við erum komin með nýja gerð hleðslutækis frá GP eða Powerbank H500 en með fylgja 4 AA 2700 mAh MiMH rafhlöður. Aðeins tekur tvær klst. að  hlaða tvær 2700 mAh AA rafhlöður en aðeins fjórar klst. ef rafhlöðurnar eru fjórar.

GP Powerbank H500 hleðslutækið

 

Þessi nýja gerð er mjög öflug eins og fram hefur komið en uppgefinn hleðslutími er frá tveimur klukkustundum.

Hleðslutækið er einnig  fyrir AAA rafhlöður. Með fylgir hleðslusnúra í 12V straumtengi í bifreiðum.

Hvert hólf er sjálfstætt og hleður þess vegna hvaða gerð af AAA eða AA rafhlöðum saman.

Búið yfirhleðsluvörn og eins hitavörn. Innbyggð vörn gagnvart einnota rafhlöðum og rafhlöðum sem ekki eru 1.2 Volt.

Hleðsluljós sem sýnir mismunandi hleðslustig (þrír litir).

Sjá aðrar gerðir hleðslutækja.