Í dag eigum við 40 ára afmæli

Nákvæmlega í dag eigum við 40 ára afmæli. Fyrsti reikningurinn Nr. 1 var þá skrifaður út á Verslunina Lugtina sem var að Snorrabraut 44 (á horni Snorrabrautar og Njálsgötu).

Á reikningnum sem hljóðar upp á 4.944 krónur eru seldar UM 1-2-3 National rafhlöður í dúsínum. National var forveri Panasonic og er enn m.a. í Asíu vörumerkið.

Ýmislegt var á þessum tíma mun einfaldara í sniðum en í dag og ber reikningurinn merki þess. t.d. stendur neðst á reikningum að öll viðskipti séu háð skilmálum Félags íslenskra stórkaupmanna.

Við vonum að við eigum þess kost að gera okkur og góðum viðskiptavinum okkar dagamun þegar komið er fram á haustið.