Hleðslutæki fyrir 18650 Li-ion rafhlöður væntanleg
Það er búið að vera mikil eftirspurn eftir Li-ion 18650 hleðslutækjum og við vitum að þau eiga eftir að renna út eins og heitar lummur.
![18650 Li-ion Hleðslutæki 18650 Li-ion Hleðslutæki](/static/files/frettir/2014/18650_hledslutaeki.jpg)
Hleðslutækið tekur tvær rafhlöður og er einstaklega handhægt og meðfærilegt.
Mikið af nýjum vasaljósum nota einmitt 18650 Li-ion rafhlöðu og hleðslutæki fylgir yfirleitt ekki kaupum á vasaljósum. Við erum með einstaklega öflugt (250 Lum) og nett vasaljós sem notar 18650 Li-ion rahlöðu en þetta ljós kynntum við fyrir nokkrum dögum.