First Power blýsýrurafhlöður komnar


Fyrsta sendingin af blýsýrurafhlöðum frá First Power sem við tökum beint frá verksmiðju þeirra í Kína er komin.


Þessar rafhlöður erum við að taka í stað þeirra fjölmörgu tegunda og merkja sem við höfum undanfarið verið að kaupa inn til að þjóna viðskiptahóp okkar. Þetta eru yfirleitt stærðir og gerðir sem eru fátíðari en þær algengustu en við erum líka að taka nokkrar af algengari gerðunum

Innkaup okkar hafa verið í litlu magni frá mörgum birgjum, með miklum tilkostnaði, svo nú þegar nokkuð magn er tekið í einu frá einum, þá eigum við þess kost að lækka verð allverulega.

Ef þið smellið á LAGERLISTI þá birtast upplýsingar um þær gerðir sem við erum komin með á lager. Ef þið hafið áhuga á að fá upplýsingar um verð vinsamlegast hringið eða sendið okkur póst á rafborg@oger.is og við getum upplýst ykkur um verð.







..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower, First Power........

........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, fartölvurafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........