Dreifibréf

 Hér á eftir fer dreifibréf það sem endurseljendur okkar og velflestir viðskitavinir okkar eiga von á að fá í hendur á næstu dögum.

 Málefni: ¨Apríl verðlisti.¨ Breytingar og nýjungar.           

 

1)  Flest allar venjulegar og alkaline Panasonic rafhlöður lækka í verði. Verðlækkun er vegna gengislækkunar og lækkunar á spilliefnagjöldum. Allar gerðir rafhlaðna eiga að lækka í verði vegna lækkunar á spilliefnagjöldum. GP alkaline rafhlöður lækka einnig í verði. 

2)  Panasonic Ultra Power (R rafhlöður) hverfa af markaðnum en í staðinn koma Panasonic Special sem lækka enn frekar í verði þegar þær koma. Panasonic Special verða eingöngu til í blister pakkningum eins og alkaline rafhlöðurnar. Hugsanlega verðum við með Zink Carbon rafhlöður (brúnsteins) frá GP sem nefnast GP Greencell en í dag eru þær á svipuðu verði og Panasonic Ultra. 

3)  Panasonic Alkaline munu heita Panasonic Xtreme Power Alkaline og hún á að endast lengur með allt að 15% meiri orku eftir stærð og gerð. Xtreme Power Alkaline verður eingöngu til í Blister pakkningum. Við verðum áfram með GP Alkaline rafhlöður en GP Alkaline er til í tveimur gerðum Super og Ultra. GP Alkaline Super er í dag í venjulegum blister pakkningum en verða í framtíðinni í magn pakkningum t.d. LR6 í 8 stk. blister og LR20 og LR 14 verða í pökkum. GP Ultra (Long Lasting for Digital Electronics) verða áfram í sömu umbúðum en það eru alkaline rafhlöður með meiri orku fyrir orkufrekari tæki.  Við gerum ráð fyrir að vera með ýmis tilboð í gangi og þá aðallega á Panasonic LR6 gerðum eins ogt.d. 4 + 2 stk. pakkningar á einstaklega góðu verði. LR6 3+1 gerðin verður ekki fáanleg en 4ra stk. pakkningar verða á sama verði og áður. Við verðum jafnvel með 12 stk. pakkningar af Panasonic LR6 á góðu verði. 

4)  Bætt útlit og umbúðir allra gerða Panasonic rafhlaðna. Betri upplýsingar á umbúðum til hvaða nota og umbúðir þægilegri til geymslu þegar þær hafa verið opnaðar. Þetta á líka við um GP rafhlöðurnar. 

5)  Panasonic Photo munu heita Panasonic Photo Power og munu þær líka koma í nýjum pakkningum.  

6)  Ni-Cd Panasonic hleðslurafhlöður hverfa af markaði og aðeins verða Ni-Mh fáanlegar. Helsta gerðin er P6 en þær koma til með að verða til í 3 stærðum 1600 mAh, 2100mAh og 2600mAh. P20 og P14 verða 3000mAh, P03 í 800mAh og P22P 170mAh. Þær koma líka í nýjum og endurbættum pakkningum og koma þær til með að heita Panasonic Recharger ACCU Power. Við höfum undanfarið verið líka með GP hleðslurafhlöður og verðum með þær áfram ásamt GP Powerbank hleðslutækjum í nokkru úrvali. Frá GP er mun meira úrval af hleðslurafhlöðum og hægt að fá t.d. GP P20 frá 1600mAh til 9000mAh. GP P14 frá 1600mAh til 3500mAh. GP P6 frá 700mAh til 2500mAh. GP P03 frá 300mAh og upp í 950mAh. GP P22 er hægt að fá 170mAh.

7)  Frá Panasonic er svo væntanleg Panasonic Digital Extreme rafhlaða í stærðinni ZR6. Með haustinu kemur svo gerð ZR03.Þessar rafhlöður eru ætlaðar í myndavélar, tölvur, leiktæki og fleira þar sem þörf er á mjög aukinni orku. Tæki og búnað sem þarf orku sem næst hratt og endist lengur. Þessar rafhlöður má alls ekki nota í venjuleg vasaljós. Sprengir peruna. Myndavél á t.d. að vera fljótari að gera sig tilbúna fyrir næstu mynd, sneggri í vinnslu, bjartara ljós og betri lýsing á skjá.  Frá GP er fáanleg DIGI 1 rafhlaðan sem er Nickel Zinc rafhlaða sem hefur þrisvar sinnum meiri endingu en venjuleg alkaline rafhlaða. Sjá frétt á heimasíðu okkar. 

8)  Frá GP höfum við aukið úrval af öllum gerðum rafhlaðna og eins reynum við að vera með sem flestar algengustu rafhlöður á lager. Þar má nefna aukið úrval af GSM símarafhlöðum, GP rafhlöður í þráðlausa síma, GP úra rafhlöður og í heyrnatæki, GP rafhlöður í vídó vélar og myndavélar, GP CR Lithíum rafhlöður og svo má lengi upp telja. 

9)  BigBat blýsýrurafhlöðurnar hafa fengið góðar viðtökur enda á mjög góðu verði. Við reynum að vera með helstu stærðir á lager. Við höfum nú verið með þessar rafhlöður á þriðja ár og þær reynst mjög vel. Við erum einnig með nokkrar gerðir af Yuasa blýsýrurafhlöðum og erum að skoða hvort við eigum að auka við það úrval en þar ræður eftirspurn. 

10)  Að endingu. Við erum komin með tölvubúnað sem gerir okkur kleyft að greina ástand rafhlaðna og eins afhlaða og endurhlaða. Þetta gefur möguleika á að kanna hvort rafhlöður séu gallaðar eða hvort sá búnaður sem þær eru notaðar við sé bilaður. Eins er hægt að reyna endurlífgun á rafhlöðum. Þetta tæki mun breyta all miklu fyrir okkur. 

Við minnum eina ferðina enn á heimasíðuna okkar www.rafborg.is.  Heimasíðan getur aðstoðað heilmikið við leit að rafhlöðum sem við bjóðum. Skoðið ennfremur nánari upplýsingar um þær nýjungar sem hér hefur verið fjallað um. 

Við viljum biðja ykkur að hafa samband ef það er eitthvað sem við getum gert til að aðstoða ykkur og auðvelda ykkur sölu og þjónustu.

 Með bestu kveðju.

Rafborg ehf.

 Dóra Gylfadóttir                                   Erla Magnúsdóttir                                 Anna Guðmundsdóttir

  Rafborg ehf. Sundaborg 3 Sími 5622130 sala@rafborg.is