Aukum úrvalið með PKcell rafhlöðum


Við erum að fá ýmsar gerðir frá PKCell eins og NiMh og Ni-Cd hleðslurafhlöður CR hnapparafhlöður, LR hnapparafhlöður og ER Lithíum 3,6V rafhlöður. Við erum komin með Ni-Mh og Ni-Cd hleðslurafhlöður í nokkrum stærðum en hinar erum við að taka inn fyrstu dagana í janúar. Frábært verð.

Frá PKCell fáum við hleðslutæki fyrir 4 stk. AA eða AAA og 2 stk. 9V. Af CR gerðum fáum við CR1220, CR1225, CR1616, CR1620, CR2450, CR2477 og af LR LR43 og LR1130.

Þessar gerðir erum við með frá m.a. Panasonic, en við viljum bæta við rafhlöðum sem eru ódýrari. Þær erum við að fá frá PKCell og Pairdeer og að líkindum fleirum.













Hleðslurafhlöður í pakka og/eða með eyrum af Ni Mh gerðum í stærðunum AA og AAA. Pakka með allt að 10 stk. SBS saman og 4 stick. Að auki fáum við aðrar stærðir bæði í D, C, SUB C og A stærðum með flatan topp í pakkagerð. Það verða bæði Ni-Mh og Ni-Cd gerðir. Eins fáum við ýmsar sérstærðir eins og 1/3, 4/5, 2/3, 4/3 af ýmsum gerðum.  Sjá upplýsingar um hleðslurafhlöðurnar.


 

Við erum svo einnig að fá Litíum rafhlöður frá sama aðila svokallaðar ER gerðir 3,6V í AA stærðum eins og ER14250 1/2AA 1200mAh, ER14335 2/3AA 1600mAh og ER14505 AA 2400mAh. Einnig erum við að skoða ER26500 C stærð 9000mAh og ER34615 D stærð 19000mAh. Við eigum kost á 3V Litíum rafhlöðum einnig en tökum þær ekki að sinni. Sjá upplýsingar um lithíum rafhlöðurnar.



..........Panasonic, Pairdeer; PKCell, BigBat, ZLPower........
........ Almennar rafhlöður,  alkaline rafhlöður, hleðslurafhlöður, blýsýrurafhlöður, rafhlöðupakkar, símarafhlöður, lithíum (litíum) rafhlöður, hnapparafhlöður, hleðslutæki, handljós, leitarljós, vasaljós, ennis eða höfuðljós, pennaljós, útivistarljós, geymslubox, rafhlöðubox, rafhlöðumælar, spennubreytar (inverterar) ofl.........