Rafhlöðusmiðja Rafborgar
Við bjóðum þá þjónustu að smíða eða endurnýja rafhlöður í hin ýmsu tæki og tól. Hér er á ferðinni allt frá sérhönnun og sérsmíði rafhlöðupakka til hinna margvíslegu nota fyrir hinn almenna notanda.
Við erum með sérstaka vél fyrir verkefnin, en við byrjuðum á þessari þjónustu í nóvember 2009. Við getum útbúið ýmsar gerðir rafhlöðupakka af hefðbundnum gerðum, eins og pakka með rafhlöðunum hlið við hlið eða SBS eins og það er kallað og eins hvert ofan á öðru eða STICK. Ýmsar útfærslur má sjá hér neðar á síðunni.
Margir rafhlöðupakkar hafa að geyma ýmis viðnám bæði hvað varðar ofhleðslu, yfirhitun ofl. ofl. Í flestum tilfellum er erfitt að eiga við slíka pakka og oftast verðum við að nota þennan búnað í nýja pakka, á ábyrgð viðskiptavinar, þar sem við liggjum ekki með fjölbreytt úrval af slíkum viðnámum.
Stundum eru pakkar lokaðir eða límdir saman og ekki til þess ætlast að þeir séu opnaðir. Stundum er það mögulegt og stundum ekki. Flesta pakka sem eru skrúfaðir saman eða smelltir er mögulegt að opna og oft mögulegt að skipta um rafhlöður en þó ekki alltaf.
Við notum eyrnaefni af ýmsum gerðum eftir því hvað við á en hér skiptir máli breidd, þykkt og efni, sem flytur orkuna. Rafhlöðurnar eru festar saman og að lokum settar í hitaplast, sem heldur pakkanum vel saman. Við merkjum svo pakkann okkur, hvaða gerðir af rafhlöðum voru notaðar og einnig með dagsetningu.
Rafhlöðurnar eru af ýmsum tegundum, en helstar má nefna Panasonic, Pkcell, Xcell, GP, LG, Samsung, Power-Xtra ofl. Gerðirnar eru Alkaline, Ni-Cd, Ni-Mh, litíum og Li-Ion. Við getum átt við einfalda pakka af litíum rafhlöðum þ.e. venjulegum og Li-Ion hleðslurafhlöðum. Mjög sjaldan getum við átt við litíum eða li-Ion ef í pakka eru viðnám, yfirhleðsluviðnám, hitaviðnám eða annar stýribúnaður.
Við pakkagerð ræður verð oft miklu og mAh fjöldi. Stundum er ekki ávinningur að fá orkumeiri rafhlöður í nýjan pakka, en hér ræður hleðslutækið, sem hlaða á pakkann í.
Við tökum á móti beiðnum og næst þegar rafhlaða tæmist hafðu samband við okkur, segðu okkur spennu tækisins, tegund og árgerð jafnvel upplýsingar sem eru á rafhlöðupakkanum og munum við þá kanna möguleika á endurnýjun. Þetta tekur yfirleitt ekki lengri tíma en tvo sólarhringa og afgreiðsla getur verið frá nokkrum dögum til viku allt eftir því hve mikil liggur við.
Uppbygging
Panasonic Ni-Cd og Ni-MH rafhlöður eru oftast notaðar í rafhlöðupakka. Í þessu samhengi skal hafa eftirfarandi í huga:
- Fjölda rafhlaðna (Hversu mörg Volt skal pakkinn vera)
- Hverskonar rafhlöður viljið þið nota ? (stærð og afköst mAh). Hér þarf að hafa í huga gerð hleðslutækis
- Rafhlöðutengingar (lóðeyru, pinnar, vírar, leiðandi lím ofl.)
- Lögun rafhlöðupakkans (sjá að neðan)
- Þarf að setja yfirhitavörn eða annan búnað í pakkann
- Ef það þarf hvar á þá að setja slíkan búnað í pakkann
- Á pakkinn að vera í plasthúsi, hitaplasti eða opinn
- Tengingar á pakkanum (lóðeyru, vírar, prentplötutengi eða annað.)
- Hér eru dæmi um helstu gerðir rafhlöðupakka
212110 |
D4000 1.2V 4000mAh NiCd PKCell |
212150 |
D9000 1.2V 9000mAh NiMh Xcell |
212200 |
C2000 1.2V 2000mAh NiCd PKCell |
212230 |
C4000H 1.2V 4000mAh NiMh |
212320 |
SC2000 1.2V 2000mAh NiMh Xcel |
212323 |
SC2000 1.2V 2000mAh NiCd PX |
212330 |
SC1500 1.2V 1500mAh Ni-Cd Xcel |
212334 |
SC2200 2200mAh NiCd PX |
212335 |
SC2200 2200mAh 1,2V NiMh PX |
212336 |
SC3000 1.2V 3000mAh m/pappa GD |
212354 |
SC4/5 1.2V 2100mAh m/pappa GD |
212400 |
A2100 1.2V 2100mAh NiMh PKC |
212405 |
A2700 1.2V 2700mAh NiMh PX |
212420 |
A2/3 1.2V 1200mAh NiMh XCell |
212430 |
A4/5 1.2V 1800mAh NiMh FDK |
212440 |
A4/3 1.2V 3800mAh NiMh Pan |
212450 |
BK450A 1.2V 4500mAh NiMh |
212503 |
AA1100 HHRFT 1.2V NiMh1100mAh |
212515 |
AA1000 1.2V 1000mAh NiCd PX |
212520 |
AA1800 1.2V 1800mAh NiMh PKCel |
212525 |
AA22001.2V 2000mAh NiMh Xcell |
212530 |
AA1500 HHRF9 1.2V 1500mAh NiMh |
212545 |
AA2/3 1.2V 650mAh NiMh PKCe |
212560 |
AA4/5 1.2V 1200mAh NiMh PKCell |
212565 |
AA4/5 1.2V 1250mAh NiMh PX |
212625 |
AAA 1.2V 750mAh NiMh FDK |
212627 |
AAA 1.2V 900mAh NiCd PX |
212630 |
HHR-70AAAE6 PAN 1.2V 700mAh |
212640 |
AAA1/3 1.2V 150mAh NiMh PKCell |
212645 |
AAA2/3 1.2V 300mAh NiMh PKCell |